Villingaholtskirkja

Villingaholtskirkja

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Villingaholtskirkja, Religious Center, Flóahreppur, Selfoss.

28/09/2026

Þjóðbúningamessa í Hraungerðiskirkju sunnudaginn 11. október kl. 14:00
Vinsamlegast athugið að árleg þjóðbúningamessa sem verið hefur í Villingaholtskirkju undanfarin ár verður að þessu sinni í Hraungerðiskirkju sunnudaginn 11. október kl. 14:00 vegna yfirstandandi endurbóta á Villingaholtskirkju.
Prestur verður séra Gunnar Jóhannesson og Hrafnkell Karlsson leiðir kirkjukórinn. Messukaffi (Pálínuboð) verður í Þingborg að lokinni messu (efri salurinn)

25/06/2026

Þessi frábæru ungmenni í Vinnuskóla Flóahrepps eru búin að vera að hreinsa á milli hellna í gangstígnum og utan við kirkjugarðsvegginn en voru óheppin með veður i dag. Þau standa sig svo vel og fengu ís frá kirkjunni sem smá þakklætisvott. Takk öll (þau gáfu leyfi fyrir myndbirtingunni)

22/05/2026

Sr. Arnaldur Arnold Bárðarson hefur verið ráðinn prestur í Árborgarprestakalli. Hann er fæddur 2. júní 1966 og var vígður 25. febrúar 1996. Hann var prestur m.a. á Hálsi í Fnjóskadal, í Noregi og síðustu þrjú ár í Heydölum. Hann var valinn til starfa í Eyrarbakkaprestakalli í ársbyrjun 2020, í nóvember það sama ár var Eyrarbakkaprestakall sameinað Árborgarprestakalli og þekkir hann því vel til í prestakallinu. Hann hefur störf 1. ágúst. Bjóðum við hann velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins með honum.

21/05/2026

Fermingarmessa á annan hvítasunnudag 25. maí kl. 14:00. Kirkjukórinn syngur, kantor Pétur Nói Stefánsson, prestur Anna Eiríksdóttir.

17/04/2026

Skráning er hafin í fermingarfræðslu í Árborgarprestakalli veturinn 2026-2027, árangur 2013.
Fermingarbarn er skráð í fræðslu og fermingardagur er valinn. Fermingarfræðsla hefst með námskeiði í ágúst og verða foreldrar einnig á þeim tíma boðaðir á fund. Fermingarfræðsla verður svo næsta vetur aðra hverja viku í fjórum hópum í Selfosskirkju og aðra hverja viku í Villingaholtskirkju fyrir börn í Flóaskóla og Eyrarbakkakirkju fyrir börn í BES.
https://selfosskirkja.skramur.is/input.php?id=10

08/04/2026

Aðalsafnaðarfundur Villingaholtssóknar verður haldinn í Villingaholtskirkju á morgun, 9. apríl kl. 20.00. Sjá dagskrá í Áveitunni.

05/04/2026

Hátíðarmessunni sem vera átti á morgun, annan í páskum kl. 11.00 er aflýst, vegna slæmrar veðurspár

Photos from Villingaholtskirkja's post 26/03/2026

Villingaholtskirkja
Hátíðarmessa á annan páskadag kl. 11:00. Kirkjukórinn syngur, kantor Pétur Nói Stefánsson, prestur Axel Árnason Njarðvík.

14/03/2026
Want your place of worship to be the top-listed Place Of Worship in Selfoss?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Website

Address


Flóahreppur
Selfoss
803

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Villingaholtskirkja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Subscribe

We will notify you when anything happens in Selfoss.