Brak

Brak

Share

Handgerðir munir úr rekaviði; fyrst og fremst þverslaufur, en líka t.d. borðskálar - íslenskt í alla staði.

Söfnuðu dósum fyrir tví­mennings­hjólinu 05/02/2021

Söfnuðu dósum fyrir tví­mennings­hjólinu Innlent Söfnuðu dósum fyrir tví­mennings­hjólinu Kolbrún Eik og Sólrún eru perluvinkonur. Mynd/Aðsend Lovísa Arnardóttir [email protected] Föstudagur 5. febrúar 2021 Kl. 06.00 Deila Kolbrún Eik og Sólrún eru perluvinkonur. Mynd/Aðsend Kol­brún Eik og Sól­rún Kristjáns....

Söfnuðu dósum fyrir tvímenningshjólinu 05/02/2021

❣️❣️❣️❣️

Söfnuðu dósum fyrir tvímenningshjólinu

17/08/2017

Brak hefur nú alllengi mátt þola að vera útundan hjá mér vegna anna við annað og liggja í láginni án mikillar athygli.
Ég hef samt enn jafn gaman af að tálga og hef haldið því áfram þegar tími gefst, svo sjálfsagt á ég núna um eða yfir 100 slaufur, amk ef það er líka talið sem ég á eftir að lakka.
Vegna þessara anna hef ég heldur ekki gefið mér tíma til að taka þátt í sýningum eða öðru slíku til að koma slaufunum sem til eru fyrir augu fólks, en ef einnhver vill kaupa slaufu má alltaf senda mér orðsendingu hér.
Ég er nokkuð lengi að vinna hverja slaufu, oftast fjóra til s*x klst þegar allt er talið og það verður til þess að slaufurnar eru ekki ódýrasta "hálstau" sem maður fær, en þær eru hins vegar tvímælalaust það flottasta! :-)

Photos 18/11/2016

Rekaviðurinn er talinn vera að mestu frá Síberíu, þar sem stórfljót bera hann til Norður-Íshafsins. Í hafinu frýs rekaviðurinn inni í hafís sem hlífir honum á leið hans. Hafstraumar bera trjábolina til Íslands og talið er að viðurinn geti verið fjögur til fimm ár á leiðinni og borist alls yfir 5000 km á þeim tíma.
Í hafinu taka sér bólfestu í viðnum dýr, sem kölluð eru maðkar en teljast til skeldýra. Þau bora sér göng um viðinn og er þá talað um að viðurinn sé ormétinn. Stundum er viðurinn svo mikið boraður að hann er til einskis nýtur, en algengara er að göng dýranna skreyti efnið og búi til einstök form sem gera á endanum hverja slaufu algerlega einstaka. Það er svolítið sérstakt að á leið viðarins yfir úthafið hafi hann verið heimkynni þessa samfélags dýra og að í slaufunum getum við virt fyrir okkur hvernig þau bjuggu.

Handgerðar tréslaufur - Íslensk hönnun 16/11/2016

Rekaviðarslaufur á tilboði!
Nú eru slaufurnar á tilboði hjá aha.is, 10% afsláttur af þeim dýrari og 20% af þeim ódýrari.
Gott tækifæri til að ná í einstakar jólagjafir!
https://www.aha.is/tilbod-dagsins/treslaufur

Handgerðar tréslaufur - Íslensk hönnun Kristján Guðlaugsson sækir viðinn á rekaviðarfjörur allt frá Selatöngumí suðri að Hraunhafnartanga í norðri. Hann notar útskurðarhníf, tálgar viðinn og skapar þverslaufu sem tekur mið af...

12/11/2016

Við vorum að bæta við myndum af fleiri rekaviðarslaufum í myndamöppuna. Úrvalið er því orðið allnokkru fjölbreyttara og jafnvel enn fallegra en það var :-)

https://www.facebook.com/pg/brak.kg/photos/?tab=album&album_id=657038707778307

Photos 20/10/2016

Ég verð að leyfa mér að skora á fólk að lesa Fréttablaðið í dag 20. október, nánar tiltekið blaðsíðu 2 í aukablaði Fréttablaðsins Fólk.
http://vefblod.visir.is/index.php?s=10396&p=221860

Photos 02/09/2016

Hef verið að gera tilraunir með lampaskerma úr rekaviði.
Meira um það á Park Inn hóteli á Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina.
Biðst afsökunar á myndgæðunum, símamynd tekin með slæmri lýsingu í bílskúrnum.

Want your business to be the top-listed Clothing Store in Akranes?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Website

Address


Presthúsabraut 26
Akranes
300