LAXEY
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from LAXEY, Fish Farm, Strandvegur 63, Vestmannaeyjar.
23/06/2026
Laxey lýkur 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði
Laxey hefur lokið 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði og undirritað skuldbindandi skilmálablað vegna fjármögnunar næsta áfanga í uppbyggingu félagsins.
Þetta er mikilvægt skref fyrir félagið og endurspeglar það traust sem hluthafar, fjármögnunaraðilar og samstarfsaðilar sýna verkefninu.
Tæpum þremur árum eftir að fyrstu hrognin komu í seiðastöðina höldum við áfram uppbyggingu starfseminnar í Vestmannaeyjum samkvæmt áætlun.
Við viljum þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg og stutt okkur á þessari vegferð.
Hægt er að lesa fréttatilkynninguna í heild á heimasíðu Laxey.
Frá september 2025 👉🏻 maí 2026
12/06/2026
Stórseiðahús Laxey komið í rekstur.
Fyrstu seiðin voru flutt frá seiðastöðinni í stórseiðahúsið 27. maí og 5. júní var flutningi alls hópsins lokið. Með því varð stórseiðahúsið formlega komið í rekstur og starfar samkvæmt áætlun.
Þetta markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu Laxey og styrkir framleiðslugetu félagsins til framtíðar.
Stórseiðahúsið er mikilvæg viðbót við áframeldisstarfsemi Laxey. Með því að skapa aukið rými fyrir stærri fisk fyrr á framleiðsluferlinu eykur húsið sveigjanleika í rekstri, bætir nýtingu innviða og stuðlar að skilvirkara framleiðsluflæði.
Stórseiðahúsið samanstendur af átta kerum, hvert með 1.050 m³ vatnsrúmmál, eða samtals 8.400 m³.
Húsið var reist á aðeins tíu mánuðum, sem er eftirtektarverður árangur og vitnisburður um þann metnað, kraft og fagmennsku sem einkennt hefur verkefnið frá upphafi. Þessi áfangi hefði ekki náðst án framlags starfsfólks, verktaka, birgja og samstarfsaðila sem hafa lagt hönd á plóg við uppbygginguna.
Við viljum færa öllum sem komu að verkefninu innilegar þakkir fyrir þeirra framlag. Þessi áfangi sýnir hvað hægt er að áorka með góðu samstarfi og sameiginlegri sýn.
10/06/2026
Lax frá LAXEY nú fáanlegur á höfuðborgarsvæðinu! 🐟
Nú er hægt að kaupa ferskan lax frá LAXEY hjá Fiskbúðinni Hófgerði í Kópavogi.
Hannes og Nanna, eigendur verslunarinnar, taka vel á móti viðskiptavinum og mæla með laxinum okkar sem hefur fengið frábærar viðtökur.
Kíktu við og nældu þér í ferskan lax frá Vestmannaeyjum.
📍 Hófgerði 30, 200 Kópavogi
06/06/2026
Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn. Njótið helgarinnar ⚓️
Í fyrsta skiptið í ár verður Laxey með á Matey.
14/05/2026
Fiskeldi hefur vaxið hratt á Íslandi á síðustu árum og með því hafa skapast ný tækifæri til náms og starfa. Hjá Laxey erum við þakklát fyrir að fá að vera hluti af þeirri þróun hér í Vestmannaeyjum.
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá fólk eins og Helgu Stellu og Gísla finna sína leið inn í greinina og byggja upp þekkingu og reynslu meðfram uppbyggingunni. Í þessari skemmtilegu umfjöllun frá Eyjafréttum segja þau frá náminu, starfinu og sinni upplifun af fiskeldi.
Nám í fiskeldisfræði opnar margar dyr - Eyjafréttir Fiskeldi hefur vaxið hratt á Íslandi á undanförnum árum og hefur skapað ný tækifæri til náms og starfa. Hér í Eyjum er uppbygging hjá Laxey í fullum gangi og sífellt fleiri sjá framtíð í greininni. Tvö þeirra eru Gísli Hjartar og Helga Stella, sem bæði ákváðu að fara í ...
06/05/2026
Viðtal við stjórnarformann LAXEY, Lárus Ásgeirsson, í Fiskifréttum um uppbyggingu félagsins, framtíðarsýn verkefnisins og þau verðmæti sem landeldi getur skapað fyrir Ísland og Vestmannaeyjar.
Stefnt er að framleiðslu allt að 36 þúsund tonna á ári með útflutningsverðmæti sem gæti numið 45–50 milljörðum króna árlega.
Útflutningsverðmæti stefna í 45-50 milljarða á ári Laxey í Vestmannaeyjum stefnir að framleiðslu á um 11 þúsund tonnum af laxi í landeldisstöð sinni í Viðlagafjöru á árinu 2027. Áformað er að stækka landeldisstöðina og sótt verður um leyfi fyrir allt að 42.000 tonna framleiðslu á ári. Núverandi leyfi heimilar hámarks líf...
28/04/2026
Í síðustu viku tók Laxey þátt í Seafood Expo Global í Barcelona, þar sem við hittum samstarfsaðila og fylgdumst með þróun í iðnaðinum.
Á sýningunni tókum við mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu með því að styrkja samstarf okkar við AKVA group og undirrita samning um nýja seiðastöð.
Jafnframt var undirritaður samningur við KAPP sem styður við þróun á samþættu stýri- og upplýsingakerfi fyrir reksturinn.
Sýningar á borð við Seafood Expo Global eru ekki eingöngu vettvangur til að kynna starfsemi, heldur þar sem markaðurinn mótast, tengsl styrkjast og framtíðarsýn mótast.
Virkilega góð og árangursrík sýning.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Website
Address
Strandvegur 63
Vestmannaeyjar
900