Svartfjalla Labrador
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Svartfjalla Labrador, Pet service, Selfoss.
16/06/2026
Sumarsýning HRFÍ var haldin um helgina 13. og 14. júní.
Við mættum tvær með tvo stóla og einn hund, hana Mollý (Svartfjalla Hörpu Líf), ætlunin var að stoppa stutt við, reyna að fá seinna ungliða meistarastigið og fara svo heim, en raunin varð önnur.
Á laugardeginum var Reykjavík Winner sýning og gerði Mollý sér lítið fyrir og uppskar, Ex-1 með CK í ungliðaflokki, fékk Jun.CERT og er því orðin íslenskur ungliðameistari, fékk einnig N-JCAC, varð BOB ungliði og BIG-2 junior.
Mollý varð einnig besta tík tegundar og fékk þar fyrsta íslenska meistarastigið (CERT) sitt og fyrsta norðurlanda meistarastigið (NCAC) varð BOB (Best of Breed) og kláraði daginn með þriðja sætið í grúbbu.
Dómari var Annette Bystrup
Á sunnudeginum var Alþjóðleg sýning og þar mætti Mollý aftur og uppskar Ex-1 með CK í ungliðaflokki, fékk Jun.CERT og einnig Jun.CACIB, varð BOB ungliði og BIG-2 junior.
Mollý varð einnig besta tík tegundar og fékk þar annað íslenska meistarastigið (CERT) sitt, varð BOS (Best of Opposite S*x).
Dómari var Daníel Örn Hinriksson
Mollý bætir því við sig titlunum ISJCH, Reykjavík Winner 26 og Reykjavík Junior Winner 26 eftir helgina.
Takk en og aftur elsku Sólrún Dröfn Helgadóttir fyrir að koma með mér á sýninguna og sýna hana Mollý, þið voruð æðislegar saman ❤️
Margrét Auður Jóhannesdóttir innilegar hamingjuóskir með hana Mollý ❤️
Mollý hefur alltaf verið fóðruð á Royal Canin Labrador fóðri frá Dýrheimar
12/06/2026
Það var heitt í göngutúrunum í hádeginu og sem betur fer var nóg af vatni með fyrir hundana, pössum að hafa nóg af vatni með fyrir þessar elskur á svona heitum dögum.
12/06/2026
Hundabúrið viðrað fyrir helgina
Það er óhætt að segja að Sigrún sé grjóthörð og fer sínar eigin leiðir 💪
02/06/2026
Morgunganga með genginu mínu❤️
01/06/2026
Umhverfisþjálfun með Sigrúnu, hún stóð sig vel og sérstaklega þegar við fórum yfir Ölfusárbrú sem getur verið erfitt fyrir hunda þegar umferðin er mikil.
30/05/2026
Svartfjalla systurnar Mollý og Sigrún mættu á deildarsýningu Retrieverdeildarinnar í morgun, þær tóku þátt í ungliðaflokki, Sigrún fékk Excellent, meistaraefni og 2 sætið, Mollý fékk Excellent og 3 sætið. Kærar þakkir Sigrún Gulludóttir fyrir að sýna hana Sigrúnu ❤️ og kærar þakkir Sólrún Dröfn Helgadóttir fyrir að sýna hana Mollý ❤️ Til hamingju með Mollý Margrét Auður Jóhannesdóttir ❤️
29/05/2026
Sigrún eignaðist 3 nýja vini í dag ❤️❤️❤️
26/05/2026
Sigrún svona líka hress eftir fyrsta hjólatúrinn sinn, stóð sig mjög vel, ekkert hrædd við hjólið, fylgdi vel og er með betri hundum sem ég hef hjólað með 🥰
21/05/2026
Morgunganga hjá þessum og svo slökun á pallinum
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Selfoss
800