Styrkleikarnir

Styrkleikarnir

Share

Styrkleikarnir snúast um að styðja við, heiðra eða minnast þeirra sem hafa fengið krabbamein

Krabbameinsfélag Íslands hefur gengið til liðs við Global Relay for Life, alþjóðlegan viðburð sem fer fram árlega í meira en 30 löndum. Íslenska nafn viðburðarins er Styrkleikarnir.

03/04/2026

✨Megið þið hafa það sem allra best yfir páskana 🐣 Hér er smá páskaglaðningur til þín frá okkur í Krabbameinsfélaginu 👉

▪️Í Vel­líð­un­ar­horn­inu er að finna ýmislegt eflandi og fræðandi, þar finnur þú skemmtilegar hugmyndir að hreyfingu sem bæði er hægt að iðka heima eða úti, fjölbreyttar upptökur með leiddri slökun og margt fleira. Við hvetjum ykkur til að skoða og nýta (https://www.krabb.is/krabbamein/lif-med-og-eftir-krabbamein/vellidunarhornid).

▪️ Á matarvefnum Gott og einfalt er að finna fjölbreyttar uppskriftir til að nýta um páskana. Uppskriftirnar taka mið af ráðleggingum um mataræði. Vefurinn er samstarfsverkefni Krabbameinsfélagsins og SÍBS.

Viltu skipuleggja Styrkleika? 30/01/2026

Krabbameinsfélagið hvetur fólk og hópa um allt land til að taka höndum saman, gerast sjálfboðaliðar og halda Styrkleika. Með Styrkleikunum virkjast samfélagið, tengsl styrkjast og við sýnum fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning, samstöðu og hlýju.

▪️Krabbameinsfélagið styður við þau sem taka að sér að skipuleggja Styrkleika í sínu nærumhverfi og á þann grunnbúnað sem þarf. Ef þú hefur áhuga og/eða vilt fá frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á [email protected] eða hafa samband við Rakel Ýr í síma 540 1925.

Viltu skipuleggja Styrkleika? Krabbameinsfélagið hvetur fólk og hópa um allt land til að taka höndum saman, gerast sjálfboðaliðar og halda Styrkleika. Með Styrkleikunum virkjast samfélagið, tengsl styrkjast og við sýnum fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning, samstöðu og hlýj...

Styrkleikarnir Úlfarsfelli 2025 14/11/2025

Þökkum öllum fyrir góðar stundir á Úlfarsfelli á Styrkleikum Bleiku slaufunnar.

Styrkleikarnir Úlfarsfelli 2025 Enjoy the videos and music that you love, upload original content and share it all with friends, family and the world on YouTube.

Photos from Styrkleikarnir's post 23/10/2025

Nemendur og starfsfólk VMA héldu sína fyrstu Styrkleika og jafnframt fyrstu Styrkleika sem haldnir eru í framhaldsskóla. Það var virkilega skemmtilegur dagur með fjölbreyttri dagskrá, meðal annars bekkpressukeppni og bingó. Að loknum góðum degi var nemendum boðið til pizzuveislu og kvöldinu lokið með ljósastund.

21/10/2025

Um helgina fóru fram Styrkleikar á Úlfarsfelli. Það var virkilega góð stemning þegar þátttakendur lögðu af stað á fjallið, en gengnar voru tæplega 700 ferðir yfir sólarhringinn. Hver og einn fór á sínum hraða og gengu þátttakendur gönguleið sem að myndar slaufu.

Takk öll fyrir samveruna um helgina.

18/10/2025

Gatli Jóhannsson skilaði sér hratt niður af fellinu og er búinn að lofa að fara fleiri en þrjár ferðir að ári. Við stólum á þig!

Photos from Styrkleikarnir's post 18/10/2025

Þessi stikuðu af stað díðustu ferðina kl 15:00

Úlfarsfellið bleikt - Vísir 18/10/2025

Hvað ætlar þú að gera í dag? Ein góð hugmynd er að koma og taka þátt í Styrkleikunum sem 100 Úlfarsfellstindar og Bleika slaufan standa fyrir. Töfrarnir við Styrkleikana felast í samstöðunni og því hvetjum við fjölskyldur, vinahópa og vinnustaði til að mæta saman og vera hvatning hvort fyrir annað.

Við hófum leika í gær kl.16 einhverjir gengu í nótt og síðasta ferð verður farin kl.15 í dag.

Hvetjum öll til að taka þátt á sínum forsendum, ganga eina ferð eða fleiri allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

Farið er upp frá bílastæðinu fyrir ofan Úlfarsárdal fáfarna leið upp á topp og svo hefðbundna leið niður veginn aftur á bílastæðið. Gengin er gönguleið sem myndar Bleika slaufu og tekur sú ganga frá 45 til 90 mín.

Styrkleikarnir eru sólarhrings viðburður sem er táknrænt fyrir að engin hvíld fæst frá krabbameini💖

Sjáumst á Úlfarsfelli!

Úlfarsfellið bleikt - Vísir Nú standa yfir styrkleikar Krabbameinsfélagsins við Úlfarfell Reykjavík í tilefni af Bleikum október.

17/10/2025

Flottur hópur sem gekk saman upp á Úlfarsfell og átti saman góða stund. Biskup Íslands fór með stutta hugvekju á toppnum og hópurinn kveikti á kertum til að minningar og stuðnings þeim sem greinst hafa með krabbamein.
Þeir allra hörðustu héldu svo gangandi inn í nóttina á meðan aðrir fara í hvíld.

17/10/2025

✨Allt að verða klárt fyrir Ljósastundina frábær mæting leggjum af stað kl.20🫶

17/10/2025

Styrkleikarnir á Úlfarsfelli farnir af stað, hvetjum alla til að líta við um helgina.

16/10/2025

100 Úlfarsfellstindar og Bleika slaufan endurtaka leika og standa fyrir Styrkleikum í Bleikum október. Fyrsta ferðin verður farinn kl. 16:00, föstudaginn, 17. október og seinasta hópferðin verður kl. 15:00 laugardaginn 18. október. Hvetjum alla til að taka þátt á sínum forsendum, ganga eina ferð eða fleiri allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

Þegar rökkvar fer á föstudag verður haldin ljósastund, sem margir þátttakendur hafa lýst að snerti hjartastrengina á einstakan hátt. Lagt verður af stað frá bílastæðinu klukkan 20:00 og á toppnum verður kveikt á kertum sem þátttakendur geta keypt til stuðnings Krabbameinsfélaginu.

Við hvetjum öll til að koma klædd eftir veðri, í góðum skóm, með fullhlaðna síma og muna eftir höfuðljósi (vasaljósi) þegar fer að dimma.

Sjáumst á Úlfarsfelli!

Fróðleikur um Styrkleikana: https://www.krabb.is/styrkleikarnir

Kjartan Long

Want your organization to be the top-listed Non Profit Organization in Selfoss?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Selfossvelli
Selfoss
800