Box800
Box800 er persónuleg æfingastöð sem fókusar á að auka lífsgæði fólks í samfélaginu.
15/06/2026
Við höfum ákveðið að hafa Mömmugrunn í júlí ef lágmarksskráning næst 💗
Skráning: abler.io/shop/box800
05/06/2026
Styrktaræfing fyrir Kolfinnu 💗
Við viljum styðja við bakið á Kolfinnu og vonumst til að sjá sem flesta á æfingu laugardaginn 13. júní.
Skráning fer fram hér: https://forms.gle/mCfEaUsLxJaonkBG8
-
Okkar kona Hólmfríður Magnúsdóttir stendur fyrir söfnun fyrir Kolfinnu og við leggum henni lið! Hér kemur smá texti varðandi Kolfinnu tekinn frá Fríðu:
“Kolfinna Rán er 13 ára gömul og greindist fyrst með krabbamein aðeins 2 og hálfs árs. Þá gekk hún í gegnum 6 mánaða lyfjameðferð og yfir 30 geislameðferðir, þar sem hún þurfti að vera svæfð í hvert skipti. Hún sigraði það — enda algjör nagli.
Í lok júlí á síðasta ári greindist Kolfinna aftur. Í ágúst hóf hún 8 lyfjagjafir, flaug síðan til Svíþjóðar í desember og gekkst undir mikla aðgerð þar sem stór hluti af lærleggnum upp í mjaðmakúlu var fjarlægður og íhlutur settur í staðinn. Að auki þurfti að fjarlægja tvo af stóru vöðvunum í lærinu. Eftir aðgerðina hefur hún klárað 10 lyfjagjafir til viðbótar.
Ný óvissa tók svo við og í vikunni gekkst hún undir aðgerð þar sem fjarlægður var blettur úr lunganu og sepi þar við hlið.
Kolfinna hefur sýnt ótrúlegan styrk og lætur ekkert stöðva sig.”
-
Margt smátt gerir eitt stórt ❤️
31/05/2026
Ekki hætta að hreyfa þig í júní! Við tökum vel á móti öllum sem vilja prófa 🫶🏻
13/05/2026
Við skellum í einn Mömmugrunn í júní ☀️
Skráning inná abler.io/shop/box800
03/05/2026
Sumarnámskeið Box800! 11-13 ára 💪🏼
Fyrirkomulag sumarnámskeiðs:
Kl. 13:00 - 13:50 æfing (styrktaræfing).
Kl. 13:50 - 14:10 nesti (börn koma með nesti að heiman).
Kl. 14:10 - 15:00 útivera (hreyfing).
Hámarksfjöldi eru 18 krakkar.
Þjálfari er Eyþór Stefánsson, eigandi og þjálfari Box800.
03/05/2026
Sumarnámskeið Box800! Tryggðu þínu barni pláss 💪🏼😎
Fyrirkomulag námskeiðs:
Kl. 09:30 - 10:10 er byrjað á æfingu inni þar sem lögð er áhersla á styrk og samhæfingu.
Kl. 10:10 - 10:30 er nestispása (börn koma með nesti að heiman).
Kl. 10:30 - 11:30 er útivera. Þá verður ýmist farið í göngutúra, hjólatúr, tekin æfing fyrir utan Box800 eða í nágrenni.
Mikilvægt að vera mættur á réttum tíma.
Fimmtudaginn 25. júní, í lok tímans, verður boðið uppá næringu frá MS, m.a. skvísur og kókómjólk.
Hámarksfjöldi eru 18.
Þjálfari er Eyþór Stefánsson, eigandi og þjálfari í Box800.
01/05/2026
Margir stefndu á Puffin run á morgun en vegna aðstæðna með Herjólf eru margir hættir við að fara. Við ætlum þó að halda plani og hlaupa á morgun frá Boxinu kl. 11:10 og það eru allir velkomnir. Það verður farinn 20km hringur en það er að sjálfsögðu hægt að stytta hlaupið. Einnig eru einhverjir sem ætla að hjóla með hópnum - svo það geta allir verið með.
Eftir hlaupið/hjólið verður boðið uppá Hleðslu og kræsingar.
Sjáumst á morgun 👏🏼👏🏼
01/05/2026
Vertu með okkur í maí! Skráning inná abler.io/shop/box800 ☀️
29/04/2026
Tímataflan okkar í maí! græjaðu þína áskrift inná: abler.io/shop/box800
26/04/2026
Vertu með okkur í maí! Við eigum nokkur laus pláss 🤩
Skráning inná abler.io/shop/box800
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Website
Address
Eyravegur 57
Selfoss
800