NLOS
✨Textar ljóð og lög eftir mig ✨
NLOS. 2007
Nathalia Lind Olguin
Biðin eftir ástinni ✨⏰
Nú erum við aðskilin
Ég þoli ei lengur þessa bið
Hugsa, þetta er bara tímabil
Sem gengur yfir, eftir eitt augnablik
En hvað á það að þýða
Að tíminn sé svo lengi að líða
Langar að fara aftur í tímann og
Leggjast í arma þína
Ég þoli ei lengur þessa bið
Hugsa, þetta er bara tímabil
Sem gengur yfir, eftir eitt augnablik
Það renna tár niður vanga mér
Er ég er ei hjá þér
Það er eins og slæm víma
Að þrá faðma þína
En hugsar þú til mín
Líkt og ég hugsa til þín
05/04/2023
Syngja og spila á Lundi er best ❤️
Þessi texti heitir - 2017 - ❤️
Hef þessa tilfinningu i hjartanu
En hugurinn segir annað.
Finnst eins og þetta sé bannað
Þú ert alltaf til staðar
Ef eitthvað amar að
Ég get ekki sagt neitt, get ekki tjáð mig.
Ég er föst i ástinni á bak við læstar dyr.
Langar að segja þér hversu heitt ég elska þig.
Ég var feimin og þú við mig
Ég vissi strax að þú varst sá sem ég þurfti
Ég g*t ekki hætt að hugsa um þig
þar til þú sagðir að þú vildir mig.
Hjartað, Hugurinn og Heimurinn fraus.
Það fraus allt innra með mér.
Ég veit að það mun ekkert ganga upp með þér
Ég mun aldrei verða þín
Því einhver annar kallar mín
Ég veit það særir þig
Því það særir mig... 💔
🌸Í ÞÍNUM SPORUM 🌸
Á meðan ég sef
Heyri samt þín skref
Nálgast mig
En hvers vegna ég ?
Ég hrópa á hjálp
Það virðist ekki nógu hátt
Er að missa allan mátt
Ein hér ég stend
Hrædd og afklædd
Óörugg, sorgmædd
Þú heldur áfram með þitt líf
En þetta mun sitja í mér alla tíð
Hjarta mitt og sál þolir ei meir
Eitt lítið högg og það deyr
Get ég byrjað upp á nýtt ?
Langar aftur í lífið þegar allt var blítt
Mér var sagt að þetta yrði bara timabil
Er orðin þreytt á þvi að þurfa spila þetta spil
———————————————
- NLOS ´23
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the public figure
Website
Address
Hella
850