Creatrix ehf.

Creatrix ehf.

Share

Signý Óskarsdóttir stofnaði Creatrix í febrúar 2016. Hún hefur tekið að sér ýmis þróunarverkefni og leitt skapandi starf af ýmsu tagi.

Creatrix sinnir aðallega verkefnum sem tengjast menntun, menningu og nýsköpun. Í því felst verkefnastjórnun, fræðsla, vinnustofur og skapandi vinna af ýmsu tagi. Signý er með MA gráðu í menningarstjórnun og hefur starfað sem stjórnandi í menntageiranum, heilbrigðisgeiranum og í opinberri stjórnsýslu svo eitthvað sé nefnt. Creatrix býður upp á verkefnastjórnun og fræðslu sérsniðna að þörfum fyrirtæ

f2f.ysbf.org 31/01/2025

Það er alltaf eitthvað að malla hjá okkur í Creatrix og í vikunni fengum við endurgjöf vegna verkefnis sem við höfum unnið að í tvö ár. Mont klippa úr endurgjöfinni "They effectively developed materials to teach about ecological footprints and food production, making these accessible and engaging for both students and teachers."
En ekkert er fullkomið og þetta verkefni verður að líta á sem frumraun á þessu sviði hjá okkur.

Okkar hlutverk var að gera fræðsluefni um uppruna og framleiðslu á saltfiski, skyri og tómötum og fjalla um umhverfisáhrif í matvælaiðnaði. Einnig er að finna samskonar efni um appelsínusafa, banana og múslí sem samstarfsaðilar okkar í Eistlandi unnu að.

Við fengum ómetanlegan stuðning frá því fólki sem við heimsóttum og tókum viðtöl við og fengum að mynda hjá. Nemendur og kennarar í skólum og allskonar aðstaða sem við fengum lánaða. Án þeirra hefði þetta ekki orðið að veruleika. Það væri gaman að telja öll upp en það væri langur listi sem hægt er að finna á heimasíðu verkefnisins.

Þetta var mikill lærdómur fyrir okkur og við vonum að þau sem hafa áhuga nýti sér námsefnið sem hér er aðgengilegt öllum. Efnið er á þremur tungumálum, ensku, íslensku og eistnesku.
Þau sem vilja nota efnið í kennslu geta líka nýtt sér verkefnahugmyndirnar sem fylgja.

PS. Dóra Svavars eldar úr íslenska hráefninu í þriðja þætti allra myndbandanna.

Buon appetit!

f2f.ysbf.org Farm 2 Fork (F2F) project aims to introduce to public, how food items we consume are grown, transported and produced and how people who do this live.

Fréttir - 16.03.2024 | RÚV Sjónvarp 17/03/2024

Skemmtilegt að taka þátt í spennandi verkefnum. Takk fyrir samstarfið MB nemendur og Listasafn Íslands!

Kíkið á fréttina.

Fréttir - 16.03.2024 | RÚV Sjónvarp Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

03/03/2024

Skemmtilegt samstarf Listasafns Íslands, MB og Creatrix.
Frí þátttaka.
Skráning hér https://forms.office.com/e/ZGZjd7tTMf

20/02/2024
15/01/2024

Verkefnið okkar Rými - X fékk styrk til að skipuleggja skapandi vinnustofur fyrir ungt fólk á aldrinum 18 - 25 ára. Við hlökkum til að vinna með ungu fólki í Borgarbyggð þeim að kostnaðarlausu.

Photos from Creatrix ehf.'s post 07/11/2023

Nú er Michelle Bird að taka upp myndefni fyrir Farm2Fork verkefnið. Efnið á að nota í fræðslumyndbönd fyrir ungmenni um kolefnisspor matvælaframleiðslu og flutnings matvæla. Næsta haust verður tilbúin heimasíða með 6 fræðslumyndböndum aðgengilegum kennurum sem vilja nýta sér efnið.

Photos from Creatrix ehf.'s post 02/10/2023

Við fengum veglegan styrk úr Uppbyggingasjóði til þess að undirbúa stofnun STEAM námsvistkerfis í Borgarbyggð með áherslu á samfélagsþátttöku og ungt fólk. Verkefnið byggir á fyrirmyndinni STEM Húsavík sem starfar eftir rótgrónu og áhrifaríku bandaríksu líkani: STEM Learning Ecosystems, sem telur yfir 100 svæðisbundin, samfélagsleg námsvistkerfi víða um heim. STEAM námsvistkerfið í Borgarbyggð mund tengjast öðrum STEM/STEAM námsvistkerfum á landsvísu og erlendis til að efla enn frekar nýmyndun þekkingar og byggja á dýrmætri reynslu.

Kortlagnin á mikilvægi menningarstarfsemi nauðsynleg - Vísir 24/04/2023

Við hvetjum ykkur til að hlusta á Ernu Kaaber sem var gestur á Sprengisandi í gær. Ánægjulegt að Háskólinn á Bifröst tekur þátt í stóru rannsóknarverkefni um mikilvægi menningar og staðbundin áhrif skapandi greina í samfélögum.

Kortlagnin á mikilvægi menningarstarfsemi nauðsynleg - Vísir Erna Kaaber, sérfr. í stefnumótun á sviði menningarmála, ætlar að gera grein fyrir þátttöku Háskólans á Bifröst í alþjóðlegu rannsóknarverkefni þar sem á að kortleggja hvernig skapandi greinar geti leitt atvinnuuppbyggingu í dreifðum byggðum.

Photos from Creatrix ehf.'s post 14/12/2022

ELF - verkefnið okkar heldur áfram og í gær var kynning á ELF appinu og heimasíðu fyrir kennara í Djúpavogsskóla. Eftir áramótin verður svo námskeið fyrir kennara sem geta þá nýtt sér appið í kennslu utandyra í náttúruvísindum, umhverfisfræði og auðvitað er hægt að tengja allt við hæglætis stefnuna, Cittá Slow. Við hlökkum mikið til að sýna afraksturinn í byrjun næsta árs. Fylgist með!

04/09/2022

Creatrix ásamt YSBF í Eistlandi hefur fengið 60.000 Evru styrk fyrir tveggja ára verkefni sem ber heitið Farm2Fork og mætti þýða sem "Frá bónda að borði". Við ætlum að búa til s*x fræðslumyndbönd þar sem við fylgjum eftir frumframleiðslu bónda alla leið að borði neytenda, skoðum vistsporið og aðra þætti er snúa að umhverfi, fólki og verðmætum.
Fræðslumyndböndin verður hægt að nota í kennslu bæði á grunn- og framhaldsskólastiginu en við höfum tekið eftir því að það vantar meira fræðsluefni af þessu tagi.
Magnús Smári Snorrason tók við styrknum fyrir okkar hönd og á myndini með honum er Rúna Vigdísi Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+, og Jón Svanur Jóhannsson, verkefnisstjóri skólahluta Erasmus+
Semsagt enn eitt verkefnið að rúlla af stað sem við hvetjum ykkur til að fylgjast með.

Want your business to be the top-listed Business in Borgarnes?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Helgugata 13
Borgarnes
310