Vefrún
Sérverslun með vörur til bútasaums. Einnig handunnar vörur;
prjónaðar, heklaðar og saumaðar. Afgr.
tímar:
Mán: 16:30-19:00
Mið: 12:00-19:00
Fim: 16:30-19:00
Lau: 11:00-17:00
22/04/2026
Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður opið frá þrjú til sjö. Tvær af dætrum heimilisins standa vaktina.
10/04/2026
Dótadagur!
Við vorum að fá allskonar smádót sem birtist í vefversluninni í dag og næstu daga.
06/04/2026
Gleðilega páska!
Í tilefni páskanna settum við undir okkur hausinn og réðumst á það verkefni að skrá öll jólaefnin. Og í dag opnum við klukkan 3 ef einhver skyldi vera svo hugaður að vilja fara út í rokið.
01/04/2026
Það er opið hjá okkur um páskana, á morgunn fimmtudag, frá 16:30 - 19 og á laugardag 11 - 17.
28/03/2026
Í vikunni kom sending frá Moda svo við fylltum á Grunge og Marbles hillurnar. Svo eigum við von á stórri sendingu af allskonar blandi í næstu viku. Þetta verður nú eitthvað!
17/03/2026
Við fengum pakka. Stikur af öllum mögulegum og ómögulegum stærðum. Líka Guðrúnar Erlu stikurnar! Ferningar og ferkantaðar og spíssaðar (kónískar) og bognar og tígullaga og stuttar og langar og allskonar bara! Sumar eru komnar í vefverslunina og fleiri bætast við í kvöld.
Uppfært: Nú eru allar stikurnar komnar í vefverslunina.
Aðeins 27 kg í boði! 😁
11/03/2026
Allskonar bækur og uppskriftir eftir Guðrúnu Erlu komnar í hillurnar!
08/03/2026
Eitt af því sem ekki má vanrækja er að þrífa saumavélina. Við erum komin með þessa sílikon pinna sem auðvelda að halda spóluhúsinu og öðru hreinu.
06/03/2026
Á morgun verður opið frá 11 til 17 eins og aðra laugardaga. Afleysingafólk verður við afgreiðslu vegna skrepps okkar hjóna að sinna viðskiptavinum á landsbyggðinni.
Og við vorum að taka upp þunnt vatt, eða svokallað dúkavatt sem er 225 cm á breidd en þynnra en það sem venjulega er notað í teppin.
05/03/2026
Vorum að fá sendingu af Wilmington efnum. Climbing Vines í 7 litum.
23/02/2026
Motturnar frá Guðrúnu Erlu eru komnar!
Við vorum að fá sendingu, og þar á meðal motturnar sem Guðrún Erla hannaði í samvinnu við Creative Grids. 4 stærðir fáanlegar, og allt komið í vefverslunina.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Contact the business
Website
Address
Opening Hours
| Monday | 16:30 - 19:00 |
| Wednesday | 12:00 - 19:00 |
| Thursday | 16:30 - 19:00 |
| Saturday | 11:00 - 17:00 |