Netpartar
Umhverfisvæn endurvinnsla bifreiða og vefverslun með notaða varahluti í nýlega bíla. Notaðir varahlutir í flestar gerðir nýlegra bíla. Gæðavottun á þjónustu.
Used spare parts for most recent car models. Quality certified services.
Góðan daginn
Við höfum lækkað verð á öllum hurðum og hlerum hjá okkur þannig að það er um að gera að skoðaurvalið inná partasalinn.is
Hello
We have dropped the price of all doors so visit partasalinn.is and check it out.
04/12/2024
SELD!!!!
Suðuvél til sölu
Kemppi Minarc 150
gömul og góð
verð 50.000.- m/vsk
fyrir frekari upplýsingar getið þið sent
skilaboð eða
email [email protected]
04/12/2024
SELDUR !!
Toptul verkfæraskápur til sölu
sem er með þessu helsta í en
er vissulega notaður
120.00.- m/vsk
fyrir frekari upplýsingar getið þið sent
skilaboð eða
email [email protected]
04/12/2024
SELDUR !!
Master hitablásari
B 150 ced 44 KW
2 ára gamall
Verð 100.000.- m/vsk
fyrir frekari upplýsingar getið þið sent
skilaboð eða
email [email protected]
04/12/2024
Til sölu vegna lokunar verkfæri og tæki.
Bílalyfta 250 þús m/vsk.
fyrir frekari upplýsingar getið þið sent
skilaboð eða
email [email protected]
30/09/2024
Netpartar hætta starfsemi.
Það er okkur hjá Netpörtum þungbært að tilkynna að ákveðið hefur verið að hætta starfsemi félagins. Síðasti rekstrardagur Netparta verður 21. desember nk.
Netpartar, sem var stofnað árið 2009, hefur alla tíð starfað með umhverfisvernd að leiðarljósi og er fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að bjóða upp á umhverfisvæna endurvinnslu bifreiða. Í gegnum tíðina höfum við fjárfest í og ötullega byggt upp öruggt og gott aðgengi að notuðum, gæðavottuðum og rekjanlegum varahlutum fyrir einstaklinga og bifreiðaverkstæði, og aðra starfsemi í kringum endurvinnslu á brotajárni og öðru hráefni úr tjónabílum. Við höfum talað fyrir notkun notaðra varahluta sem lið í vitundarvakningu um endurnýtingu og endurvinnslu á bifreiðum og hlotið viðurkenningar fyrir framlag okkar til sjálfbærni, m.a. viðurkenningu Samtaka atvinnulífsins sem Framtak ársins í umhverfismálum. Einnig höfum við átt farsælt og faglegt samstarf, bæði hérlendis og erlendis, um hvernig sé hægt að standa sem best að meðhöndlun tjónabíla og úrsérgenginna bifreiða, hvort sem þær ganga fyrir jarðefnaeldsneyti eða rafmagni. Við erum afar stolt af því að hafa stutt við nýsköpunarfyrirtæki og framsækna hönnuði sem leitast við að nýta þau verðmæti sem felast í aflóga bifreiðum. Þá höfum við talað fyrir breytingum á regluverki og aukinni vitund um nauðsyn þess að styrkja löggjöf í þessum málaflokki.
Rekstrargrundvöllur félagsins hefur verið mjög erfiður undanfarin ár, bæði vegna vaxtastigs en aðallega vegna mikillar hækkunar á verði hráefnis eins og tjónabifreiða. Viðskiptamódel Netparta byggir á því að hafa aðgang að og kaupa bifreiðar á tjónauppboðum tryggingafélaganna, selja heila varahluti úr þeim og koma öðru hráefni úr þeim í endurvinnslu hjá til þess bærum aðilum. Verð á tjónabifreiðum á slíkum uppboðum hefur haldist mjög hátt í langan tíma og engin fyrirsjáanleg breyting virðist vera á því. Við sjáum okkur ekki fært að keppa lengur á þeim vettvangi, þar sem endursala á varahlutum og öðru hráefni heldur ekki í við þá hækkun.
Öllu starfsfólki Netparta hefur verið sagt upp störfum, en laun og launatengd gjöld verða greidd út í samræmi við uppsagnarfrest starfsfólks, eins og kveðið er á um í ráðningarsamningum. Síðasti starfsdagur Netparta verður 21. desember nk.
Við erum óskaplega stolt af því sem við höfum áorkað en að sama skapi sorgmædd yfir því að ekki sé grundvöllur fyrir áframhaldandi starfsemi. Við trúum ennþá að starfsemi eins og okkar sé samfélagslega og umhverfislega nauðsynleg, ekki síst með hliðsjón af áformum Íslands um að draga úr losun á gróðurhúsalofttegundum.
Við viljum þakka öllum okkar viðskiptavinum, samstarfsaðilum og velunnurum innilega fyrir viðskipti og stuðning á undanförnum árum. Sérstaklega viljum við þakka öllu okkar frábæra starfsfólki fyrir þeirra mikilvægu störf í gegnum tíðina.
Aðalheiður Jacobsen,
Framkvæmdastjóri Netparta
29/02/2024
Hér er nýtt og spennandi verkefni sem er einstakt á heimsvísu, að við höldum amk.💚 Varaaflsstöðvar hér á landi eru nær eingöngu knúnar af olíu en með því að þróa svokallaðar blendingsstöðvar með endurnýttum rafbílarafhlöðum er hægt að minnka olíunotkun. Markmiðið með verkefninu er að minnka notkun á olíu til rafmagnsframleiðslu og draga þannig úr losun gróðurhúsalofttegunda, minnka kostnað auk þess að minnka sóun á fágætum rafhlöðuhráefnum. Svona vara getur gagnast aðlum eins og sjúkrahúsum, flugvöllum, gagnaverum og öðrum sem þurfa 100% raforkuöryggi. Er þetta ekki "win-win"?
Alor og Netpartar: endurnýting á rafbílarafhlöðum fyrir umhverfisvænni rafstöðvar | Netpartar Nýsköpunarfyrirtækið Alor, sem sérhæfir sig í rafhlöðurannsóknum og þróun þeirra og við hjá Netpörtum Netpartar, höfum gert með okkur samkomulag um
21/12/2023
Blessuð jólin að koma í allri sinni fegurð🎄! Við óskum ykkur öllum gleðilegrar og friðsællar jólahátíðar, og farsældar á nýju ári. Þökkum fyrir góð samskipti og viðskipti á árinu sem er að líða🥰.
Dagana 27. - 29. desember verður opið á milli 8-12 og 13-16. Lokað verður í hádeginu🙏.
08/12/2023
Loftpúðinn hristir heldur betur upp í sjálfbæra hönnunarheiminum🍃. Okkur þykir stórkostlega vænt um þetta verkefni. Hægt er að kjósa um bestu grænu vöruna á Green Product Award 2024 en til að styðja við vegferð loftpúðans er hægt að kjósa hann hér að neðan. Ást og friður💚. Og brokkolí🥦.
FÓLK Reykjavík - Íslensk hönnun fyrir nútímalíf FÓLK Reykjavik er vaxandi íslenskt hönnunarmerki. Sýn okkar er að auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum sjálfbærari lífsstíl.
29/11/2023
Getum við sloppið við förgun? Við getum að minnsta kosti reynt það. Bílaframleiðendur geyma mikilvægan hlekk að lausn 🍃
Getum við sloppið við förgun? | Netpartar Sumir myndu telja að við tækjum á móti ónýtu dóti allan daginn. En ekki við. Við sjáum ekkert nema verðmæti í bílunum sem við tökum við, þó þeir geti ekki
10/11/2023
Innilegar hamingjuóskir til vinkvenna okkar hjá Flétta sem koma stundum við hjá okkur og taka ónýta loftpúða og gera úr þeim nytsama gersemi í stað þess að þeir lendi í urðun. Nýsköpun og hönnun fyrir FÓLK - til hamingju öll!
Loftpúðinn er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023 - Miðstöð hönnunar og arkitektúrs Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er hreyfiafl sjálfbærrar verðmætasköpunar sem byggir á hönnun og arkitektúr. Miðstöðin stuðlar að auknu samstarfi milli hönnuða og fyrirtækja og vinnur að því að efla hönnunardrifna og notendavæna nýsköpun sem mótandi afl í menningu, sam...
08/11/2023
Þetta hér er borvél og reyndar engin venjuleg borvél, heldur sérhönnuð og smíðuð af Jóa til að bora g*t á bensín- og olíutanka til að tappa af vökva með skilvirkum hætti. Ein sinnar tegundar í öllum heiminum, erum við nokkuð viss um.🔩⚙️🍃🤓
Jóhann Fannar Pálmarsson
Telephone
Website
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 17:00 | |
| Tuesday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 17:00 | |
| Wednesday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 17:00 | |
| Thursday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 17:00 | |
| Friday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 16:00 |