Lamb-Inn
Accomodation in quiet, friendly hotel in the countryside 8-9 minutes from Akureyri.
Frá og með núna hækkar sól á lofti.
Við höldum áfram með þriðjudagshádegin hjá okkur á Lamb Inn. Léttur hádegisverður kaffi og kökur á 2.500 og áhugavert erindi. Á morgun, þriðjudaginn 08.02., verður Brynjar Skulason skógfræðingur með erindi um skógrækt og bindingu koltvísýrings með sérstöku tulliti til landbúnaðar. Gott væri að panta á [email protected] eða í síma 463 1500.
Kótilettukvöldverður á Lamb Inn föstudaginn 28. janúar KL 19.00 Okkar vinsælu kótilettur, búðingahlaðborð og kaffi á 5.500 KR. Takmarkaður sætafjöldi. Pantanir í síma 463 1500 eða á [email protected]
fullkominn staður fyrir næsta partý! panta á netfangið [email protected]. eða hringið í síma 463-1500
Lamb-Inn Accomodation in quiet, friendly hotel in the countryside 8-9 minutes from Akureyri.
01/11/2021
ÖXIN, AGNES OG FRIÐRIK
verður flutt á LAMB INN, á Öngulsstöðum 3 í Eyjafirði laugardaginn 6. nóvember nk. kl 16.00
Pantanir á [email protected] eða 463 1500. Veitingastaðurinn Fimbul Cafe verður opinn að sýningu lokinni og eins verður hægt að fá hressingu í hléinu. Panta borð fyrirfram ef fólk ætlar að borða.
>>>
Þann 12 janúar 2020 þegar 190 ár voru liðin frá síðustu aftöku á Ísland hóf undirritaður að segja söguna á Söguloftinu í Borgarnesi. Aðsókn var frábær.
Nú verður þessi frásögn flutt á norðurlandi, fyrst í Eyjafirði og síðar í nóvember á Blönduósi.
>>>>>
Eftirfarandi umsagnir og margar fleiri birtust eftir sýningar í Borgarnesi: >>>>
Magnús hóf frásögn sína á aftökunni sjálfri og lýsti því hvernig Björn Blöndal sýslumaður hefði skikkað alla bændur á stóru svæði til að vera viðstaddir aftökuna eða senda vinnumann í sinn stað ef þeir kæmust ekki. ........... Svo lýsti Magnús komu þeirra Agnesar og Friðriks að Þrístöpum og kom frásögn hans af háttalagi Friðriks mér á óvart. Þar steig fram algerlega nýr Friðrik miðað við vitneskju mína áður. ........ Það var auðvelt að hrífast með Magnúsi og trúa hverju orði sem hann sagði. Hann er sagnamaður af bestu gerð, sjór af fróðleik, skýr og skilmerkilegur, rökfastur, kíminn og hefur vísur á hraðbergi til að krydda og skemmta.
Silja Aðalsteinsdóttir www.forlagid.is
Magnús Ólafsson er sagnamaður af guðs náð, er einn þeirra sem heldur uppi heiðri hefðbundinnar íslenskrar frásagnarlistar. Hann hefur hljómþýða rödd sem þægilegt er að hlusta á og engum dylst sem á hann hlýðir að Magnús þekkir söguna um síðustu aftökun á Íslandi eins og handarbakið á sér, ef ekki betur. . ....... .... ... . Frásögn Magnúsar er ítarleg og skipulega fram sett. Frásagnarstíllinn er rólegur og yfirvegaður og stemningin á Söguloftinu var í senn afslöppuð og heimilisleg. Inn í frásögn sína skýtur Magnús ýmsum skemmtilegum atriðum, svo sem vísum og fleira stuttu skemmtiefni sem í ófá skipti kitlaði hláturtaugar gesta, en alltaf af virðingu fyrir persónum og leikendum sögunnar. Tilgangur frásagnarinnar er enda að fræða fólk og skemmta. Hvort tveggja gerir Magnús listavel og óhætt að mæla heilshugar með Öxinni fyrir alla áhugasama.
-Kristján Gauti Karlsson Skessuhornið.
.. 'yfirvar' með sinni aldeilis ágæta sögustund á Landnámssetursloftinu í Borgarnesi, þar sem Magnús Ólafsson rakti harmasögu Agnesar og Friðriks. Fróðleg, rækileg, skýr og skipuleg var saga hans með sínum hæfilega stíganda.... ............ . Kvöldið og umhverfi þess minnti á góða heimsókn sagnamanns á bæinn heima í byrjun minnis míns. Gaman að slíkir skuli enn vera til - og koma að norðan. ............. ... Takk fyrir kvöldið
Bjarni Guðmundsson Hvanneyri á Facebook
25/09/2021
The restaurant is closed tonight so we can work on our fall and winter menu. BUT, we will have a surprise/secret pizza night 😊. Stop by for Vikings, pizza, and happy hour beer from 630 until 10 tonight. Lamb-Inn
463-1500
Við erum að ráða í húshald! Hlutastarf eða fullt starf. Hafðu samband ef þú hefur áhuga [email protected]
26/05/2021
Viltu ganga til liðs við okkur á nýja veitingastaðnum okkar? Við leitum að starfsfólki í okkar litla lið. Ekki er krafist neinnar reynslu, þó hún sé æskileg. Erum að ráða bæði í þjónustu- og eldhússtörf. Hringið í Matt í síma 839 4626 eða sendið póst á [email protected] ef þið hafið áhuga.
Join us as we open our new and unique cafe. We are looking for staff members for our small team. No experience required, but appreciated. Hiring for both service and kitchen positions.
Call Matt at 8394626 or send an email [email protected]
10/05/2021
Einstök matarupplifun í Hofi Fimbul Cafe býður upp á Innsæi, sjö rétta smakkseðil, í Menningarhúsinu Hofi fimmtudagskvöldið 20. maí. Smakkseðillinn samanstendur af sjö ólíkum réttum sem allir eiga það sameiginlegt að fanga matarhefðir Eyjafjarðar á einstakan hátt. Hægt er að panta vínpörun með matnu...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Contact the hotel
Telephone
Website
Address
Akureyri
601